Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Leitað er að jákvæðum og lausnamiðuðum aðila í starf framkvæmdastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistuheimilanna. Framkvæmdastjóri vinnur að stefnumótun og framþróun í þjónustu Hrafnistu í samvinnu við æðstu stjórnendur fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs situr í framkvæmdaráði Hrafnistu. Heilbrigðissvið er stoðsvið fyrir öll heimili Hrafnistu og hefur það meginhlutverk að efla gæði og hafa yfirumsjón með faglegri þróun í vinnubrögðum. Það er gert með það fyrir augum að veita framúrskarandi þjónustu fyrir þjónustuþega og starfsfólk Hrafnistu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfnikröfur
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu, helstu reynslu og ástæðum þess að umsækjandi telur sig henta vel í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður Böðvarsdóttir, mannauðsráðgjafi, audur.bodvarsdottir@hrafnista.is
