Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Sjómannadagsráð leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða verkefni tengt nýframkvæmdum og endurbótum húsnæðis. Verkefnastjóri hefur umsjón með verkum á hönnunar- og framkvæmdastigi, gerir áætlanir og hefur eftirlit með framkvæmdum á byggingarstað. Verkefnastjóri fylgir eftir að rekstur verkefna sé innan kostnaðar- og tímaramma og tryggir lágmörkun á röskun á starfsemi rekstraraðila vegna endurbóta húsnæðis.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Sjómannadagsráð er leiðandi afl í öldrunarþjónustu á Íslandi sem vinnur að því að veita eldri borgurum framúrskarandi þjónustu svo íbúar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan.
Sjómannadagsráð sinnir umfangsmiklum rekstri húsa og þjónustu fyrir fólk á besta aldri. Lögð er áhersla á heildræna nálgun þegar kemur að málefnum eldri fólks og að tengja saman hjúkrunarheimilin, íbúðir fyrir eldra fólk og þjónustumiðstöðvar með lífsgæðakjörnum Das.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu, helstu reynslu og ástæðum þess að umsækjandi telur sig henta vel í starfið.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur V. Söring, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs og Das íbúða (throstur@sjomannadagsrad.is)
