Verkefnastjóri á hjúkrunardeild – Laugarás

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða til sín verkefnastjóra á hjúkrunardeild í 100% starfshlutfall.

Verkefnastjóri á hjúkrunardeild vinnur náið með stjórnendum heimilisins (forstöðumanni, deildar- og aðstoðardeildarstjóra), sinnir vaktaskýrslugerð, aðstoðar við ráðningar og móttökuferli á nýju starfsfólki auk þess að sinna fjölbreyttum verkefnum sem til falla á deildunum og heimilinu öllu.

Við leitum að jákvæðum, sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi sem er tilbúinn til að takast á við fjölbreytt verkefni í skemmtilegu og lifandi umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Gerð vaktaskýrslna og eftirlit með tímaskráningum
  • Aðkoma að ráðningum og móttöku nýs starfsfólks sem og fræðslu
  • Eftirlit og skráning á orlofi, vinnuskyldu og þ.h.
  • Kenna starfsfólki á My time plan vaktakerfið
  • Greiningarvinna (t.a.m. með veikindahlutföll og þ.h.)
  • Móttaka og eftirfylgni með nýju heimilisfólki
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af vaktaskýrslugerð eða haldbær reynsla í vaktavinnu á hjúkrunardeild kostur
  • Reynsla af Mytimeplan vaktakerfi kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi kostur
  • Mjög góð tölvufærni nauðsynleg
  • Jákvæðni, sjálfstæði og góðir samskiptahæfileikar
  • Nákvæmni og skipulagshæfni
  • Góð greiningarhæfni
  • Þekking á kjarasamningum er kostur

Aðrar upplýsingar:

Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Umsóknarfrestur: 24.04.2025
Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Hrafnista Laugarás

Sumarafleysing – Verslun og þjónustuborð

Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í sumarafleysingu til að sjá um litla verslun og móttökunni á Hrafnistu Laugarási. Vinnutími er alla virka daga frá kl 09.00-16.10 ...
Umsóknarfrestur: 20.04.2025
Staðsetning: Hrafnista Laugarás

Hjúkrunarfræðingur – Hrafnista Sléttuvegi

Vilt þú vinna með okkur að því markmiði að vera leiðandi í umönnun og þjónustu við aldraða? Ert þú hjúkrunarfræðingur í leit að nýju starfstækifæri og vilt vinna á fjölskylduvænum vinnustað þar sem st...
Umsóknarfrestur: 20.04.2025
Staðsetning: Hrafnista Sléttuvegur

Matartæknir – Hrafnista Laugarás

Hrafnista Laugarási óskar eftir öflugum matartækni í framleiðslueldhús Hrafnistuheimilanna. Starfshlutfall er 100%. Unnið er á vöktum og vinnutíminn er 7:30-15:00 og 7.30-14.45 aðra hverja helgi. ...
Umsóknarfrestur: 20.04.2025
Staðsetning: Hrafnista Laugarás

Matreiðslumaður – sumarafleysing

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða matreiðslumenn í framleiðslueldhúsið. Starfshlutfall og vaktir samkomulagsatriði.  Eldhúsið í Laugarási þjónar Hrafnistuheimilunum 6 á höfuðborgarsvæðinu. ...
Umsóknarfrestur: 27.04.2025
Staðsetning: Hrafnista Laugarás

Hjúkrunarfræðingur – Laugarás

Vilt þú vinna með okkur að því markmiði að vera leiðandi í umönnun og þjónustu við aldraða? Ert þú hjúkrunarfræðingur í leit að nýju starfstækifæri og vilt vinna á fjölskylduvænum vinnustað þar sem st...
Umsóknarfrestur: 27.04.2025
Staðsetning: Hrafnista Laugarás
Megin markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa, bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.