Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga veitti nýverið hvatningarstyrki til hjúkrunarfræðinga sem hafa haft jákvæð og áhrifamikil áhrif á þróun hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustu á Íslandi.
Meðal þeirra sem hlutu þessa verðugu viðurkenningu er Sunnefa Lindudóttir, hjúkrunardeildarstjóri á Hrafnistu Skógarbæ. Sunnefa hlaut styrkinn fyrir frumkvöðlastarf sitt við innleiðingu á Namaste-nálguninni á Hrafnistu. Hugmyndafræði sem snýr að því að mæta einstaklingum með hlýju, virðingu og dýpri tengingu.
Með metnaði og næmni hefur Sunnefa leitt þessa nálgun inn á meirihluta deilda Hrafnistu með það að markmiði að efla vellíðan íbúa, draga úr óróleika og veita starfsfólki verkfæri til að nálgast íbúa af nærgætni og kærleika.
Hrafnista óskar Sunnefu hjartanlega til hamingju með hvatningarstyrkinn. Við erum afar stolt af því að hafa Sunnefu í okkar hópi. Hún er einstakur fagmaður og sannarlega verðugur fulltrúi þeirra gilda sem hjúkrun byggir á. Þessi viðurkenning er bæði verðskulduð og innblástur fyrir okkur öll.