Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Hrafnista Hraunvangi óskar eftir að ráða drífandi og skapandi einstakling í sumarafleysingu til að halda utan um og stýra viðburðum á heimilinu.
Viðkomandi kemur einnig til með að styðja við starfið sem fram fer í dagdvöl heimilisins.
Um er að ræða fjölbreytt starf sem krefst sjálfstæðra vinnubragða, frumkvæðis og góðrar samskiptahæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
– Umsjón með daglegu starfi félagsstarfsins og viðburðum á heimilinu.
– Aðstoð í dagdvöl
– Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
– Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
– Kostur ef viðkomandi er tómstundamenntaður eða kann á hljóðfæri
– Reynsla sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði
– Góð samskiptahæfni ásamt ríkri þjónustulund
– Jákvæðni og metnaður í starfi
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna. Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
