Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Langar þig að vinna að fjölbreyttum mannauðsverkefnum í metnaðarfullu teymi mannauðsfólks á einum stærsta vinnustað landsins? Þá erum við á Hrafnistu mögulega að leita að þér.
Mannauðssvið Hrafnistu leitar að fjölhæfum, jákvæðum, drífandi og skipulögðum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviðinu. Á sviðinu starfa, ásamt mannauðsstjóra, 6 mannauðsráðgjafar og einn verkefnastjóri.
Mannauðssvið er eitt stoðsviða Hrafnistu og þjónustar öll Hrafnistuheimilin sem eru sjö talsins í fimm sveitarfélögum. Það er því nauðsynlegt að hafa bíl til umráða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og telur nú 7 heimili og u.þ.b. 2000 starfsmenn.
Á Hrafnistu er mikið um ráðningar og rekið er öflugt fræðslustarf í stöðugri þróun auk þess sem sviðið sinnir öllu hliðum mannauðsmála og hefur verið í fjölbreyttum umbóta og innleiðingarverkefnum undanfarin ár. Starfsmannahópurinn er fjölbreyttur og skemmtilegur á öllum aldri og af um 50 þjóðernum.
Framtíðarsýn Hrafnistu er að vera leiðandi í þjónustu við aldraðra og hefur það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu svo íbúar, aðrir þjónustuþega og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan.
Ef þú vilt vinna á fjölskylduvænum vinnustað þar sem við leggjum m.a. áherslu á öflugan mannauð, framúrskarandi samskipti, þróun og umbætur á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Unnið er úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Jakobína H. Árnadóttir mannauðsstjóri (jakobina@hrafnista.is).
