Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu framtíðarstarfi?
Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni?
Þá erum við mögulega að leita að þér!
Hrafnista Laugarási leitar að öflugu starfsfólki í fjölbreytt umönnunarstörf. Um er að ræða 80-100 % starf í vaktavinnu. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið dagvaktir í bland við aðrar vaktir.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsfólk í umönnun sinnir fjölbreyttum verkefnum og er enginn vinnudagur eins. Það starfar náið með íbúum og aðstoðar þá meðal annars við fataskipti, böðun, salernisferðir, matmálstíma, lyfjainntöku og félagslegan stuðning.
Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.