Tækniaðstoð

Hrafnista er á fleygiferð í innleiðingu á fjölbreyttri nýrri tækni. Til að styðja við það óskum við eftir þjónustumiðuðum aðila til að styðja við tækniþjónustu Hrafnistu og tendra félaga. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á tækni og vera viljugur til að læra nýja hluti og innleiða nýjar tæknilausnir. Starfið krefst þess að viðkomandi sé á ferðinni á milli starfsstöðva.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eftirfylgni með þjónustu við innri kerfi ásamt samskiptum við þjónustuaðila
  • Umsýsla farsíma (Samsung Knox)
  • Yfirsýn og þjónusta á öllum Hrafnistuheimilunum
  • Þátttaka í innleiðingum á kerfum
  • Miðlun á upplýsingum til notenda
  • Aðstoð við gerð á handbóka
  • Utanumhald pantana frá stjórnendum á tölvubúnaði o.þ.h.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
  • Nám sem nýtist í starfi t.a.m. tækni og/eða kerfisstjórnunarnám
  • Haldgóð þekking og reynsla af upplýsingatækni
  • Góð þekking og reynsla af Microsoft umhverfi
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Framúrskarandi hæfni í samvinnu og samskiptum
  • Vilji til að læra og þróast í starfi
  • Þekking og reynsla á powerapps er kostur
  • Reynsla í verkefnastjórnun er kostur

Viðkomandi þarf að hafa aðgang að bifreið en greitt er fyrir akstur.

Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Oddgeir Reynisson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, oddgeir.reynisson@hrafnista.is.

Umsóknarfrestur: 06.08.2025
Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Hrafnista

Umönnun framtíðarstarf- Boðaþing

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starfstækifæri? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Hrafnista Boðaþi...
Umsóknarfrestur: 24.07.2025
Staðsetning: Hrafnista Boðaþing

Umönnun framtíðarstarf – Laugarás

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starfstækifæri? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Hrafnista Laugar...
Umsóknarfrestur: 25.07.2025
Staðsetning: Hrafnista Laugarás

Aðstoðarmanneskja í sjúkraþjálfun

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða skipulagðan og sjálfstæðan einstakling sem aðstoðarmann sjúkraþjálfara í sjúkraþjálfunarteymi Hrafnistu í Laugarási. Um 50-70% framtíðarstarf er að ræða. ...
Staðsetning: Hrafnista Laugarás
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.