Hrafnista óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara í 80% starfshlutfall, eða eftir samkomulagi, í öflugt sjúkra- og iðjuþjálfunarteymi á Hrafnistu Sléttuvegi.
Á heimilinu búa 99 íbúar og eru þau hópurinn sem sjúkra- og iðjuþjálfunardeildin þjónustar.
Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Nánari upplýsingar veitir Anna Margrét Guðmundsdóttir deildarstjóri sjúkra- og iðjuþjálfunardeildar (anna.gudmundsdottir@hrafnista.is).