Sjúkraþjálfari í endurhæfingarteymi – Hrafnista Laugarási

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara í nýja og öfluga endurhæfingardeild.

Við erum að byggja upp framsækna og samþætta endurhæfingardeild og leitum að sjúkraþjálfara sem hefur áhuga á þróun, nýsköpun og þverfaglegri nálgun.

Endurhæfingardeildin samanstendur af sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum, íþróttafræðingum og aðstoðarfólki og þjónustar íbúa og þjónustuþega dagendurhæfingar . Um er að ræða fjölbreytt, þverfaglegt og gefandi starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika, öfluga liðsheild og tækifæri á að taka þátt í mótun og þróun nýrrar deildar. Nýr tækjasalur og góð aðstaða. Möguleiki á göngudeildarþjónustu (ambulant).

Um 80-100% starf er að ræða.

Hjá okkur færð þú:

  • fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á mótun og þróun þjónustu
  • sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi
  • öflugt þverfaglegt samstarf
  • vettvang til að þróa eigin styrkleika og fagmennsku
  • góða starfsaðstöðu og nýjan tækjasal

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining, endurhæfing, þjálfunaráætlanir og skráning
  • Skipulagning endurhæfingar íbúa og þjónustuþega dagendurhæfingar
  • Ráðgjöf og umsóknir á hjálpartækjum
  • Fræðsla fyrir þjónustuþega og starfsfólk
  • Teymisvinna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Landlæknisembættinu
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagshæfni
  • Faglegur metnaður
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi

Sjúkraþjálfun er mikilvægur þáttur í að stuðla að auknum lífsgæðum einstaklinga sem búa við færniskerðingar af einhverju tagi. Markmið endurhæfingardeilda á Hrafnistuheimilunum er að auka og viðhalda lífsgæðum þjónustuþega með fjölbreyttum hætti og finna leiðir til að koma til móts við mismunandi þarfir hvers og eins.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar

Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Nánari upplýsingar veitir Gígja Þórðardóttir deildarstjóri endurhæfingardeildar (gigja.thordardottir@hrafnista.is)

Umsóknarfrestur: 14.06.2026
Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Hrafnista Laugarás

Starfsmaður í borðsal – Hrafnista Sléttuvegi

Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling í borðsal heimilisins.  Um 80% starfshlutfall er að ræða. Viðkomandi kemur með að vinna dagvaktir á virkum dögum ...
Umsóknarfrestur: 31.05.2026
Staðsetning: Hrafnista Sléttuvegur

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri – Sléttuvegur

Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir að ráða til sín aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar í 80-100% starf.  Hefur þú áhuga á að prófa þig áfram í stjórnunarstöðu en vilt á sama tíma fá að sinna hjúkrun? Þ...
Umsóknarfrestur: 31.05.2026
Staðsetning: Hrafnista Sléttuvegur

Framtíðarstarf í eldhúsi & borðsal – Skógarbær

Hrafnista Skógarbæ leitar að skipulögðum og þjónustumiðuðum einstaklingi til starfa í eldhús og í borðsal. Um er að ræða 70% starf (eingöngu virkir dagar). Kostur er ef viðkomandi hefur reynslu af eld...
Umsóknarfrestur: 14.06.2026
Staðsetning: Hrafnista Skógarbær
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.