Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða matreiðslumenn í sumarafleysingu í framleiðslueldhúsið. Starfshlutfall og vaktir samkomulagsatriði.
Eldhúsið í Laugarási þjónar Hrafstuheimilin öll sem eru sjö talsins. Eldhúsið er eitt stærsta framleiðslueldhús landsins eftir viðamiklar endurbætur og stækkun upprunalega eldhússins á Hrafnistu í Laugarásnum í nóvember árið 2019. Með stækkun eldhússins fóru framleiðsluafköst úr 850 í 1.800 skammta á sólarhring fyrir Hrafnistuheimilin. Auk stækkunar og skipulagsbreytinga á nýtingu rýmisins voru nær öll tæki til starfseminnar endurnýjuð eins og nauðsynlegt var vegna aukinna framleiðsluafkasta.
Í eldhúsum Hrafnistuheimilanna er matreiddur fjölbreyttur heimilsmatur. Flest allt sérfæði sem þörf er á er eldað á Hrafnistu og leitast er við að maturinn henti sem flestum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.