Matartæknir – Hrafnista Laugarás

Hrafnista Laugarási óskar eftir öflugum matartækni í framleiðslueldhús Hrafnistuheimilanna. Framreiðslueldhúsið í Laugarási sér um mat fyrir öll Hrafnistuheimili höfuðborgarsvæðisins.

Starfshlutfall er 100%. Unnið er á vöktum og vinnutíminn er 7:30-15:00 og 7:30-14:45 aðra hverja helgi.

Markmið starfsins er að nýta sértæka þekkingu til að útbúa matseðla og rétti fyrir sérfæði- og sjúkrafæði. Að miðla þekkingu við matreiðslu sérfæðis og aðstoða við matseld, undirbúning, frágang og þrif.

Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Útbúa matseðla fyrir sérfæði- og sjúkrafæði
  • Útbúa fjölbreytta rétti fyrir einstaklinga með fæðuofnæmi og/eða fæðuóþol
  • Frágangur og þrif
  • Miðla þekkingu við matreiðslu sérfæðis

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Matartæknanám
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Reynsla af sambærilegu starfi

Fríðindi í starfi

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Við bjóðum upp á jákvæðan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun

Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Umsóknarfrestur: 04.05.2025
Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Hrafnista Laugarás
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.