Hrafnista óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í öflugt endurhæfingarteymi sem starfar á Boðaþingi, Ísafold og Skógarbæ. Endurhæfingarteymið samanstendur af sjúkra- og iðjuþjálfum ásamt aðstoðarfólki á hverju heimili. Teymið vinnur náið saman og stýrir þjálfun íbúa hjúkrunarheimilanna. Um fullt starf er að ræða.
Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstærðra vinnubragða, lausnarmiðaðrar hugsunar og góðrar samskiptahæfni. Í endurhæfingarteymi Hrafnistu leitast iðjuþjálfar við að starfa einstaklingsmiðað og leita leiða til að mæta þörfum hvers og eins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Nánari upplýsingar veitir Ester Gunnsteinsdóttir deildarstjóri sjúkra- og iðjuþjálfunar (ester.gunnsteinsdottir@hrafnista.is)