Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Hrafnista Nesvöllum óskar eftir að ráða hjúkrunardeildarstjóra á nýja 40 íbúa hjúkrunardeild. Framundan eru spennandi tímar á Nesvöllum en í vetur fer heimilið úr einni deild með 60 íbúa í þrjár deildir með samtals 140.
Stefnt er á að nýjar deildir verði teknar í notkun undir lok árs og leitum við því að öflugum leiðtoga til taka þátt í þessu krefjandi og jafnframt skemmtilega verkefni með okkur.
Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf í haust.
Við leitum að jákvæðum, lausnamiðuðum og drífandi leiðtoga sem hefur áhuga á að veita framúrskarandi og faglega þjónustu til handa íbúum heimilisins og aðstandendum þeirra.
Deildarstjóri er hluti af stjórnendahópi Hrafnistu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Allar frekari upplýsingar veitir Þuríður Ingibjörg Elísdóttir (thuridur.elisdottir@hrafnista.is)