Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða skipulagðan og sjálfstæðan einstakling sem aðstoðarmann sjúkraþjálfara í sjúkraþjálfunarteymi Hrafnistu í Laugarási. Um 50-70% framtíðarstarf er að ræða. Sjúkraþjálfun í Laugarási þjónustar bæði íbúa hjúkrunarheimilisins og einstaklinga sem koma í tímabundna dagendurhæfingu. Vinnan og skjólstæðingahópurinn er því afar fjölbreyttur.
Viðkomandi kemur til með að starfa undir leiðsögn deildarstjóra og annarra sjúkraþjálfara í fjölbreyttum verkefnum, skipulagi og utanumhaldi, Vinnan á sér m.a. stað í tækjasal og inni á hjúkrunardeildum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem m.a. er lögð áhersla á öflugan mannauð, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og fjölskylduvænt umhverfi þá viljum við endilega heyra frá þér.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri sjúkraþjálfunar, (gigja.thordardottir@hrafnista.is).