Kæru starfsmenn og íbúar Hrafnistu.
Í tilefni sjómannadagsins vil ég senda ykkur öllum innilegar hátíðarkveðjur fyrir hönd Sjómannadagsráðs – móðurfélags Hrafnistu – og deila með ykkur örlitlu broti úr þeirri merkilegu sögu sem liggur að baki þessu einstaka samfélagi okkar.
Í upphafi var Sjómannadagsráð stofnað árið 1937 af sjómönnum á höfuðborgarsvæðinu með það eitt að markmiði að halda Sjómannadaginn hátíðlegan. En þetta upphaflega markmið varð fljótt að einhverju miklu stærra og meira. Fljótlega eftir stofnun Sjómannadagsráðs tók hópurinn sig til og ákvað að ráðast í eitt stærsta og mikilvægasta velferðarverkefni sem íslenskt samfélag hefur átt – að byggja upp heimili og þjónustu fyrir aldraða. Þannig var grunnurinn að Hrafnistu lagður.
Á bak við þetta framtak var sterk samkennd, ábyrgðartilfinning og framtíðarsýn sjómanna – um að enginn skyldi gleymast þegar árin færðust yfir. Þeir sem höfðu sótt sjóinn á meðan þeir máttu, áttu líka skilið reisulegt og hlýlegt heimili þegar þeir kæmu í land – til góðs lífs á efri árum.
Síðan þá hefur Hrafnista vaxið og dafnað – í dag erum við stærsta einstaka þjónustueining landsins fyrir aldraða, með fjölbreytta þjónustu, öflugan mannauð og framtíðarsýn sem byggir á virðingu, nærveru og gæðum. Og það er ykkur að þakka – starfsfólki, sem daglega leggið hjarta og hendur við verkið, og ykkur íbúum, sem eigið Hrafnistu með nærveru ykkar, sögu og lífsreynslu.
Í tilefni sjómannadagsins skreytum við heimili Hrafnistu sérstaklega – ekki aðeins til heiðurs sjómönnum, heldur líka til að minna okkur öll á upphafið og tilganginn sem dregur þráðinn milli kynslóða. Skrautið er táknræn minning um það þegar sjómenn lögðu af stað í það ferðalag sem varð að Hrafnistu – og við göngum áfram saman með sömu hugsjón að leiðarljósi: að veita eldri borgurum landsins bestu mögulegu þjónustu með hlýju, reisn og virðingu.
Með þökk og virðingu,
Aríel Pétursson
Stjórnarformaður Sjómannadagsráðs