
Í Landanum í gærkvöldi var umfjöllun um verkefnið Sameinum kynslóðir sem Bjarney Gunnarsdóttir starfsmaður á Hrafnistu á frumkvæði að. Við greindum frá því á dögunum að Bjarney hefði hlotið styrk frá Rannsóknarsjóði Hrafnistu til að vinna áfram með verkefnið en hún er nú að þróa kennsluleiðbeiningar sem er hluti af lokaverkefni hennar í meistaranámi í íþróttafræði.
