
Hrafnista er eitt af þremur hjúkrunarheimilum sem tekur þátt í spennandi tilraunaverkefni sem nefnist Málbrú. Verkefninu er ætlað að þróa nýja aðferð fyrir erlent starfsfólk við að læra íslensku.
Aðdragandi Málbrúar var ítarleg greining á þörf innan aðildarfélaga SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu), hugmyndavinna út frá þeirri greiningu og stefnumótun. Heiða Björk Vignisdóttir, lögfræðingur SFV, leiddi vinnuna ásamt stýrihópi, skipuðum fulltrúum hjúkrunarheimila. Í kjölfar þeirrar vinnu var Rebekka Levin (Levingroup ehf.) ráðin til starfa til að móta og þróa heildstæða lausn á grundvelli greiningar og stefnumótunar stýrihóps, og úr varð Málbrú.
Í fréttatilkynningu frá SFV segir:
„Verkefnið er unnið í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneytið og byggir á samningi aðila um þróun og innleiðingu starfstengdrar íslenskufræðslu fyrir starfsfólk hjúkrunarheimila með annað móðurmál en íslensku, frá 2024.
Um 35% starfsfólks hjúkrunarheimila með annað móðurmál en íslensku
Um 20% íbúa á Íslandi eru með annað móðurmál en íslensku og hækkar hlutfallið upp í 35% þegar litið er til starfsfólks á hjúkrunarheimilum. Á vinnustöðum þar sem samskipti skipta sköpum fyrir öryggi, vellíðan og liðsheild er tungumálið lykillinn.
Við vinnum í fjöltyngdu umhverfi og það er styrkleiki. Málbrú er okkar svar við þeirri staðreynd.“
Umfjöllun á vef SFV. Lesa nánar hér
