Hrafnistu úthlutað veglegum styrk frá fagráði Fléttunnar

Síðastliðinn föstudag hlaut Hrafnista í annað sinn veglegan styrk frá fagráði Fléttunnar að upphæð 10 milljónir króna við hátíðlega athöfn í Djúpinu Hrafnistu Sléttuvegi. Styrkurinn mun styðja við áframhaldandi innleiðingu og þróun smáforritsins Iðunnar á öll Hrafnistuheimilin, en undanfarið ár hefur Iðunn verið innleidd hjá Hrafnistu Sléttuvegi, Skógarbæ, Boðaþingi, Hraunvangi og á Ísafold. Þetta er í þriðja sinn sem styrkir eru veittir úr Fléttunni og í ár bárust alls 44 umsóknir og var 12 styrkjum úthlutað.

Með Fléttunni gefst heilbrigðisstofnunum um allt land tækifæri til að innleiða og nýta áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista og auka hagkvæmni og skilvirkni kerfisins. Stuðningurinn er háður því skilyrði að nýsköpunarfyrirtækin eigi í nánu samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem skuldbinda sig til að innleiða nýsköpun fyrirtækisins. Fléttan er því brú á milli einkaframtaksins og heilbrigðiskerfisins.

Hrafnista setur sér það markmið að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Liður í því er að efla faglega þekkingu starfsfólks, auka starfsánægju og bæta starfsumhverfi starfsfólks. Smáforritið Iðunn er því eitt af þeim verkefnum sem mun færa okkur nær markmiðum Hrafnistu.

Iðunn leiðbeinir starfsmönnum hvernig á að þjónusta hvern og einn íbúa og ávinningurinn verður m.a. betri yfirsýn á þarfir hvers og eins, auk ýmissa annarra þátta. Iðunn mun þ.a.l. auka öryggi og gæði í þjónustunni. Þróunin á Iðunni er samstarfsverkefni Hrafnistu og Helix. Hrafnista þakkar fagráði Fléttunnar fyrir kærkominn styrk sem mun styðja við tækniþróun og aukna skilvirkni í þjónustu hjúkrunarheimila.

Þær María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistuheimilanna, Gunnur Helgadóttir framkvæmdarstjóri heilbrigðissviðs Hrafnistuheimilanna og Harpa Hrund Albertsdóttir hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur á heilbrigðissviði tóku við styrknum fyrir hönd Hrafnistu. Harpa hefur ásamt Maríu Hrund Stefánsdóttur, lækni og sérfræðingi á heilbrigðissviði unnið að þróun og innleiðingu Iðunnar í góðu samstarfi við starfsfólk Helix og Hrafnistu.

Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.