„Held að æðri máttarvöld hafi vísað mér hingað“

Í nýlegu viðtali við Lifðu núna er rætt við Guðbjörgu Maríu Árnadóttur deildarstjóra í dagendurhæfingu  á Hrafnistu Laugarási.

„Dagendurhæfing fyrir eldri borgara á Hrafnistu veitir vel skipulagða þjónustu fyrir fólk sem þarf að ná upp fyrri getu eða byggja upp hreysti eftir veikindi eða byltu. Skjólstæðingar eru sóttir að morgni og keyrðir til baka síðdegis. Markmiðið með endurhæfingunni er að einstaklingur auki og viðhaldi færni og geti verið áfram í sjálfstæðri búsetu að henni lokinni. Dagskrá hvers og eins er sniðin að þörfum hans og getu hverju sinni.“

Viðtalið við Guðbjörgu birtist á lifdununa.is. Lesa nánar hér.

Hvað er dagendurhæfing?
Dagendurhæfing er skilgreind sem tímabundið endurhæfingarúrræði fyrir eldri borgara með áherslu á að styrkja líkamlega, andlega og félagslega færni, með það að markmiði að viðhalda og auka sjálfstæða búsetu einstaklinga.
Hún er ætluð sem 8–10 vikna úrræði, með 3–5 heimsóknum á viku.

Hvað felst í dagskránni?
Fyrstu dagarnir eru notaðir til að kynnast þátttakandanum og móta einstaklingsmiðaða dagskrá sem snýr að:
Líkamleg þjálfun: Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar bjóða upp á einstaklingsmiðaða meðferð eða hópþjálfun í tækjasal.
Iðjuþjálfun og félagsstarf: Lögð er áhersla á daglega athafna- og félagsgetu, sem og fræðslu af ýmsu tagi.

Hverjum er þessi þjónusta ætluð?
Þeir sem eru 67 ára og eldri og búa heima geta sótt um hér.
Dagendurhæfing  er eingöngu í boði á Hrafnistu Laugarási í Reykjavík.

Hvers konar ávinningur?
Markmiðið er að efla sjálfstæða búsetu með líkamlegri, félagslegri og andlegri endurhæfingu.
Tekur á einangrun með félagsstarfi og styrkir sjálfsbjargargetu einstaklinga í daglegu lífi .

 

 

 

Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.