
Þröstur V. Söring framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs og DAS íbúða segir að gróflega áætlað kalli mannfjöldaþróunin á Íslandi á að bæta þurfi árlega við 200 nýjum hjúkrunarrýmum fyrir aldraða ef á að takast að halda í við eftirspurn.
Í nýrri uppbyggingaráætlun Sjómannadagsráðs, Hrafnistu og DAS íbúða fyrir lóðirnar við Hraunvang, Laugarás og Skógarbæ má sjá þá uppbyggingu og stækkun sem þörf er á fram til ársins 2040.
„Við héldum vinnustofur og ræddum við öll félög eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu, hittum öll öldungaráðin hjá sveitarfélögunum, funduðum með Landssambandi eldri borgara og ræddum vitaskuld vandlega við starfsfólk okkar, íbúa Hrafnistuheimilanna og DAS íbúða og gegnumgangandi þema í því sem fólk lagði til var að skapa þyrpingar sem mynda samfélag þar sem fólk getur komið saman.“
Vinna við áætlunina hófst árið 2023 og samráðsferlið leiddi í ljós að hyggilegast væri að byggja upp svokallaða lífsgæðakjarna, líkt og gert hefur verið við Sléttuveg þar sem finna má kjarna sem samanstendur af hjúkrunarheimili, þjónustumiðstöð og 150 íbúðum sem eru leigðar út til eldra fólks sem býr þar sjálfstætt.
Grein eftir Þröst V. Söring birtist á mbl.is. Lesa nánar hér.
