
{"id":2761,"date":"2024-03-02T11:13:50","date_gmt":"2024-03-02T11:13:50","guid":{"rendered":"https:\/\/hrafnista.is\/?p=2761"},"modified":"2025-02-26T11:40:57","modified_gmt":"2025-02-26T11:40:57","slug":"er-eldra-folk-audlind-peningaaflanna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/er-eldra-folk-audlind-peningaaflanna\/","title":{"rendered":"Er eldra f\u00f3lk au\u00f0lind peningaaflanna?"},"content":{"rendered":"<p>Eftirfarandi grein eftir Ar\u00edel P\u00e9tursson formann Sj\u00f3mannadagsr\u00e1\u00f0s birtist \u00ed Morgunbla\u00f0inu \u00ed dag:<\/p>\n<p><strong>Er eldra f\u00f3lk au\u00f0lind peningaaflanna?<\/strong><\/p>\n<p>M\u00e1laflokkur \u00f6ldrunarm\u00e1la og \u00f6ll s\u00fa margv\u00edslega \u00fej\u00f3nusta sem veitt er af fyrirt\u00e6kjum, stofnunum, f\u00e9lagasamt\u00f6kum og sj\u00e1lfseignarstofnunum hefur vafalaust alla bur\u00f0i til \u00feess a\u00f0 vera gr\u00f3\u00f0av\u00e6nlegur bransi \u00fear sem h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a \u00e1 t\u00e1 og fingri. En l\u00edkt og sk\u00f3lakerfi landsmanna, l\u00f6gg\u00e6sla og fleiri mikilv\u00e6gir innvi\u00f0ir sem skapa samf\u00e9lag okkar er \u00f6ldrunar\u00fej\u00f3nustan einnig grundvallarsto\u00f0 samf\u00e9lagslegra innvi\u00f0a og \u00e6tti \u00fev\u00ed samkv\u00e6mt \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00fata l\u00f6gm\u00e1lum \u00f3ar\u00f0semisdrifins rekstrar l\u00edkt og gegnir til a\u00f0 mynda um Sj\u00f3mannadagsr\u00e1\u00f0 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0isins sem eiga Hrafnistuheimilin og au\u00f0vita\u00f0 fleiri rekstrara\u00f0ila.<\/p>\n<p>Eigendur og rekstrara\u00f0ilar hj\u00fakrunarheimila eru af \u00ferennu tagi: Hi\u00f0 opinbera (r\u00edki\u00f0 og sveitarf\u00e9l\u00f6g), hagna\u00f0ardrifnir einkaa\u00f0ilar me\u00f0 samning vi\u00f0 hi\u00f0 opinbera um b\u00e6\u00f0i leigu h\u00fasn\u00e6\u00f0is og grei\u00f0slu daggjalda, og loks \u00f3hagna\u00f0ardrifnir einkaa\u00f0ilar og sj\u00e1lfseignarstofnanir me\u00f0 samning vi\u00f0 hi\u00f0 opinbera; stundum kalla\u00f0ur \u00feri\u00f0ji geirinn.<\/p>\n<p>Sj\u00f3mannadagsr\u00e1\u00f0, sem \u00e1 og rekur Hrafnistuheimilin og \u00edb\u00fa\u00f0aleiguf\u00e9lagi\u00f0 Naustav\u00f6r er \u00f3hagna\u00f0ardrifi\u00f0 einkafyrirt\u00e6ki, \u00fear sem aldrei er greiddur ar\u00f0ur til eigenda. Sj\u00f3mannadagsr\u00e1\u00f0, \u00e1samt d\u00f3tturf\u00e9lagi s\u00ednu Naustav\u00f6r me\u00f0 s\u00ednum 350 leigu\u00edb\u00fa\u00f0um, er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 vera \u00ed fars\u00e6lum rekstri \u00ed 67 \u00e1r \u00e1n \u00feess a\u00f0 tekin hafi veri\u00f0 svo miki\u00f0 sem ein kr\u00f3na \u00fat \u00far rekstrinum til a\u00f0 grei\u00f0a eigendum. Allt afgangsf\u00e9, \u00feegar \u00fea\u00f0 gerist, hefur fr\u00e1 upphafi veri\u00f0 vari\u00f0 til vi\u00f0halds fasteigna, b\u00e6ttrar \u00fej\u00f3nustu og eftir atvikum til frekari uppbyggingar. \u00deeir sem standa a\u00f0 baki Sj\u00f3mannadagsr\u00e1\u00f0s gera \u00fea\u00f0 me\u00f0 tvennt \u00ed huga: af \u00feeirri hugsj\u00f3n a\u00f0 l\u00e1ta gott af s\u00e9r lei\u00f0a til samf\u00e9lagsins og \u00ed lei\u00f0inni a\u00f0 b\u00faa sj\u00e1lfum s\u00e9r \u00e1hyggjulaust \u00e6vikv\u00f6ld \u00ed framt\u00ed\u00f0inni, enda ver\u00f0um vi\u00f0 sj\u00e1lf \u00f6ldru\u00f0 ef vi\u00f0 berum til \u00feess g\u00e6fu. S\u00f6mu s\u00f6gu er a\u00f0 segja af bakhj\u00f6rlum t.d. Grundar sem starfa\u00f0 hefur \u00ed meira en 100 \u00e1r.<\/p>\n<p>N\u00fa, sem betur fer, eru breytingar fyrirhuga\u00f0ar \u00e1 fyrirkomulagi vi\u00f0 fj\u00e1rm\u00f6gnun fasteigna undir hj\u00fakrunarheimili sem hafa veri\u00f0 \u00e1 forr\u00e6\u00f0i r\u00edkis og sveitarf\u00e9laga \u00ed fj\u00f6lm\u00f6rg \u00e1r. N\u00faverandi fyrirkomulag hefur leitt af s\u00e9r h\u00e6ga uppbyggingu n\u00fdrra r\u00fdma og \u00feegar \u00feau hafa veri\u00f0 reist hafa \u00feau gjarnan veri\u00f0 fokd\u00fdr. D\u00e6mi um \u00fea\u00f0 er tv\u00f6falt h\u00e6rra ver\u00f0 \u00e1 fermetra vi\u00f0 byggingu n\u00fds hj\u00fakrunarheimilis \u00e1 Selfossi heldur en vi\u00f0 Sl\u00e9ttuveg \u00ed Fossvogi, en s\u00ed\u00f0ar nefnda verkefni\u00f0 var unni\u00f0 undir stj\u00f3rn Sj\u00f3mannadagsr\u00e1\u00f0s, allt fr\u00e1 alhli\u00f0a h\u00f6nnun til v\u00edgslu heimilisins \u00feegar \u00edb\u00faar fluttu inn. Hi\u00f0 n\u00fdja fyrirkomulag mun gera sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0um a\u00f0ilum kleift a\u00f0 l\u00e1ta hendur standa fram \u00far ermum og byggja n\u00fd hj\u00fakrunarr\u00fdmi \u00ed takti vi\u00f0 aukna eftirspurn og fj\u00f6lgun \u00ed elsta h\u00f3pi \u00cdslendinga. Frumundirb\u00faningur er \u00feegar hafinn a\u00f0 sl\u00edku verkefni \u00e1 l\u00f3\u00f0 Hrafnistu \u00ed Hafnarfir\u00f0i.<\/p>\n<p>Reykjav\u00edkurborg hefur n\u00fdlega gengi\u00f0 til samstarfs vi\u00f0 nokkur einkarekin hagna\u00f0ardrifin fasteignaf\u00e9l\u00f6g um \u00fer\u00f3un \u201el\u00edfsg\u00e6\u00f0akjarna\u201c \u00e1 v\u00f6ldum st\u00f6\u00f0um \u00ed borginni. F\u00e9l\u00f6gin hafa kynnt frumhugmyndir um \u00fea\u00f0 hvernig \u00feau sj\u00e1 sl\u00edk verkefni fyrir s\u00e9r. Or\u00f0i\u00f0 l\u00edfsg\u00e6\u00f0akjarni er \u00fear allt umlykjandi. Or\u00f0i\u00f0 t\u00edskuor\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed er vir\u00f0ist. Sj\u00f3mannadagsr\u00e1\u00f0 hefur all langa s\u00f6gu a\u00f0 segja um \u00fer\u00f3un l\u00edfsg\u00e6\u00f0akjarna. \u00dea\u00f0 er hugtak sem Sj\u00f3mannadagsr\u00e1\u00f0 skilgreindi upphaflega sem hugmyndafr\u00e6\u00f0i sem \u00ed raun hefur veri\u00f0 fylgt \u00ed \u00e1ratugi hj\u00e1 Hrafnistu. \u00dea\u00f0 var fyrst skilgreint \u00e1 fundi starfsmanna Naustavarar \u00e1ri\u00f0 2020 sem vanta\u00f0i gott hugtak yfir \u00fea\u00f0 mikla samf\u00e9lag sem var a\u00f0 byggjast upp \u00e1 okkar vegum vi\u00f0 Sl\u00e9ttuveg \u00ed Fossvogi. \u00dear er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a samf\u00e9lag \u00feeirra sem b\u00faa \u00ed sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ri b\u00fasetu \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0um sem eru kl\u00e6\u00f0skerasni\u00f0nar a\u00f0 \u00fe\u00f6rfum eldra f\u00f3lks hvar innangengt er \u00ed \u00fej\u00f3nustumi\u00f0st\u00f6\u00f0 me\u00f0 miklu frambo\u00f0i af f\u00e9lagsstarfi, af\u00fereyingu, dagdv\u00f6l, heilsur\u00e6kt, h\u00e1r- og f\u00f3tsnyrtistofu, mats\u00f6lu, kaffih\u00fasi \u00e1samt verslun me\u00f0 fj\u00f6lbreyttu v\u00f6ru\u00farvali. Allt \u00feetta er svo sambyggt hj\u00fakrunarheimili og \u00ed sameiningu myndast slagkraftur sem aldrei hefur \u00e1\u00f0ur \u00feekkst \u2013 og \u00fev\u00ed vanta\u00f0i n\u00fdtt hugtak \u2013 L\u00edfsg\u00e6\u00f0akjarnann.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er nokkur n\u00fdlunda a\u00f0 hagna\u00f0ardrifin fasteignaf\u00e9l\u00f6g sem grei\u00f0a ar\u00f0 til eigenda hyggi \u00e1 landvinninga \u00e1 svi\u00f0i \u00f6ldrunar\u00fej\u00f3nustu me\u00f0 ger\u00f0 langt\u00edmasamninga vi\u00f0 r\u00edki\u00f0 um leigu h\u00fasakosts undir starfsemi hj\u00fakrunarheimila. Au\u00f0vita\u00f0 er fullkomlega e\u00f0lilegt a\u00f0 einkaa\u00f0ilar byggi e\u00f0a breyti og leigi fasteignir fyrir einstaklinga og fyrirt\u00e6ki, en \u00ed s\u00e9rh\u00e6f\u00f0u h\u00fasn\u00e6\u00f0i hj\u00fakrunarheimilis, og a\u00f0allega \u00fear sem a\u00f0 r\u00edki\u00f0 er millig\u00f6nguma\u00f0ur um h\u00fasakostinn, hefur einstaklingurinn sem \u00fear b\u00fdr f\u00e1tt a\u00f0 segja um hlutskipti sitt og \u00fe\u00e1 a\u00f0st\u00f6\u00f0u og \u00fej\u00f3nustu sem \u00fear er \u00ed bo\u00f0i. \u00deess vegna er mikilv\u00e6gt a\u00f0 gengi\u00f0 ver\u00f0i h\u00e6gt um gle\u00f0innar dyr \u00feegar byggingara\u00f0ilar kynna hugmyndir um l\u00edfsg\u00e6\u00f0akjarna \u00fev\u00ed \u00feeir eru ekki bara einhver h\u00fasakostur heldur mengi margra \u00f3umfl\u00fdjanlegra og mikilv\u00e6gra \u00fej\u00f3nustuatri\u00f0a sem mynda hinn eina sanna l\u00edfsg\u00e6\u00f0akjarna. \u00deess vegna geld \u00e9g varhug vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tilvonandi framkv\u00e6mdaa\u00f0ilar sty\u00f0jist vi\u00f0 skilgreininguna l\u00edfsg\u00e6\u00f0akjarni sem \u00ed m\u00ednum huga er mun meira en a\u00f0eins \u00feak yfir h\u00f6fu\u00f0i\u00f0.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eftirfarandi grein eftir Ar\u00edel P\u00e9tursson formann Sj\u00f3mannadagsr\u00e1\u00f0s birtist \u00ed Morgunbla\u00f0inu \u00ed dag: Er eldra f\u00f3lk au\u00f0lind peningaaflanna? M\u00e1laflokkur \u00f6ldrunarm\u00e1la og \u00f6ll s\u00fa margv\u00edslega \u00fej\u00f3nusta sem veitt er af fyrirt\u00e6kjum, stofnunum, f\u00e9lagasamt\u00f6kum og sj\u00e1lfseignarstofnunum hefur vafalaust alla bur\u00f0i til \u00feess a\u00f0 vera gr\u00f3\u00f0av\u00e6nlegur bransi \u00fear sem h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a \u00e1 t\u00e1 og fingri. En l\u00edkt [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":2762,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[32],"tags":[],"class_list":["post-2761","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2761","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2761"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2761\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/2762"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2761"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2761"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hrafnista.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2761"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}