Verkefnastjóri framkvæmda – Sjómannadagsráð

Sjómannadagsráð leitar að öflugum verkefnastjóra til að leiða verkefni tengt nýframkvæmdum og endurbótum húsnæðis. Verkefnastjóri hefur umsjón með verkum á hönnunar- og framkvæmdastigi, gerir áætlanir og hefur eftirlit með framkvæmdum á byggingarstað. Verkefnastjóri fylgir eftir að rekstur verkefna sé innan kostnaðar- og tímaramma og tryggir lágmörkun á röskun á starfsemi rekstraraðila vegna endurbóta húsnæðis.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sérfræðiráðgjöf og/eða verkefnisstjórn nýframkvæmda- og endurbótaverkefna
  • Gerð og eftirfylgni tíma- og kostnaðaráætlana
  • Eftirlit með gæðum, öryggi og framvindu á byggingarstað
  • Þátttaka í frumkvæðisverkefnum innan Sjómannadagsráðs 
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við framkvæmdastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði mannvirkjagerðar 
  • Farsæl reynsla af verkefnastjórnun tengt mannvirkjum á hönnunar- og framkvæmdastigi
  • Reynsla af gerð tíma-, verk- og kostnaðaráætlana á hönnunar- og framkvæmdastigi
  • Færni í textagerð og framsetningu efnis
  • Þekking og reynsla á hugmyndafræði vistvænnar hönnunar er kostur
  • Reynsla af notkun hönnunarhugbúnaðar
  • Rík samskiptafærni, þjónustulund og hæfni til að starfa í teymi
  • Skipulagshæfni, frumkvæði auk jákvæðs og lausnamiðaðs viðhorfs

Sjómannadagsráð er leiðandi afl í öldrunarþjónustu á Íslandi sem vinnur að því að veita eldri borgurum framúrskarandi þjónustu svo íbúar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan.

Sjómannadagsráð sinnir umfangsmiklum rekstri húsa og þjónustu fyrir fólk á besta aldri. Lögð er áhersla á heildræna nálgun þegar kemur að málefnum eldri fólks og að tengja saman hjúkrunarheimilin, íbúðir fyrir eldra fólk og þjónustumiðstöðvar með lífsgæðakjörnum Das.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu, helstu reynslu og ástæðum þess að umsækjandi telur sig henta vel í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Þröstur V. Söring, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs og Das íbúða (throstur@sjomannadagsrad.is)

Umsóknarfrestur: 13.09.2026
Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Sjómannadagsráð

Iðjuþjálfi í endurhæfingardeild á Nesvöllum

Hrafnista óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í öfluga endurhæfingardeild á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Endurhæfingardeildin samanstendur af sjúkra- og iðjuþjálfum, íþróttafræðingi og aðstoðarfólki og er teym...
Umsóknarfrestur: 06.09.2026
Staðsetning: Hrafnista Nesvellir

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri – Sléttuvegur

Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir að ráða til sín aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar í 90-100% starf.  Hefur þú áhuga á að prófa þig áfram í stjórnunarstöðu en vilt á sama tíma fá að sinna hjúkrun? Þ...
Umsóknarfrestur: 14.09.2026
Staðsetning: Hrafnista Sléttuvegur
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.