Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Hrafnista óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í öflugt endurhæfingarteymi á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Endurhæfingarteymið samanstendur af sjúkra- og iðjuþjálfum, íþróttafræðingu og aðstoðarfólki og er teymisvinna því mikil. Teymið vinnur náið saman og stýrir endurhæfingu og þjálfun íbúa hjúkrunarheimilisins. Jafnframt er unnið í þverfaglegu teymi með deildarstjórum hjúkrunardeilda og öðru fagfólki.
Um 80-100% starf er að ræða.
Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnarmiðaðrar hugsunar og góðrar samskiptahæfni. Í endurhæfingarteymi Hrafnistu leitast iðjuþjálfar við að starfa einstaklingsmiðað og leita leiða til að mæta þörfum hvers og eins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Nánari upplýsingar veitir Þuríður Elísdóttir (thuridur.elisdottir@hrafnista.is) og Elín Ingólfsdóttir (elin.ingolfsdottir@hrafnista.is).
