Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starfi?
Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni?
Þá erum við mögulega að leita að þér!
Hrafnista Sléttuvegi leitar að öflugu sumarstarfsfólki í fjölbreytt umönnunarstörf. Um er að ræða 70- 100% starf í vaktavinnu. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið dagvaktir í bland við aðrar vaktir.
Um sumarafleysingu er að ræða og því er ekki hægt að verða við öllum óskum um sumarfrí.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
