Umönnun framtíðarstarf- Boðaþing

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu og spennandi framtíðarstarfi? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Þá erum við mögulega að leita að þér!

Hrafnista Boðaþingi leitar að öflugu starfsfólki í fjölbreytt umönnunarstörf frá og með haustinu. Um er að ræða 70- 100% starf í vaktavinnu. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið dagvaktir í bland við aðrar vaktir. Á heimilinu búa í dag 44 íbúar en nú standa yfir framkvæmdir og kemur Hrafnista til með að opna nýja deild í Boðaþingi í sumar. Eftir stækkun koma til með að vera starfræktar tvær deildir, ein með 44 íbúum og sú nýja með 64 íbúum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs
  • Sinna félagslegum þörfum íbúa

Starfsfólk í umönnun sinnir fjölbreyttum verkefnum og er enginn vinnudagur eins. Það starfar náið með íbúum og aðstoðar þá meðal annars við fataskipti, böðun, salernisferðir, matmálstíma, lyfjainntöku og félagslegan stuðning.

Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Umsóknarfrestur: 24.07.2025
Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Hrafnista Boðaþing

Hjúkrunarfræðingar – Hrafnista Boðaþingi

Vilt þú vinna með okkur að því markmiði að vera leiðandi í umönnun og þjónustu við aldraða? Ert þú hjúkrunarfræðingur í leit að nýju starfstækifæri og vilt vinna á fjölskylduvænum vinnustað þar sem st...
Umsóknarfrestur: 06.07.2025
Staðsetning: Hrafnista Boðaþing

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri – Sléttuvegur

Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir að ráða til sín aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar í 80-100% starf.  Hefur þú áhuga á að prófa þig áfram í stjórnunarstöðu en vilt á sama tíma fá að sinna hjúkrun? Þ...
Umsóknarfrestur: 29.06.2025
Staðsetning: Hrafnista Sléttuvegur

Hjúkrunardeildarstjóri – Hrafnista Nesvellir

Hrafnista Nesvöllum óskar eftir að ráða hjúkrunardeildarstjóra á nýja 40 íbúa hjúkrunardeild sem undir lok árs. Deildarstjóri er leiðtogi í hjúkrun og þjónustu við íbúa á hjúkrunardeild. Framundan eru...
Umsóknarfrestur: 06.07.2025
Staðsetning: Hrafnista Nesvellir
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.