Sjúkraliðar með viðbótardiplóma – Hrafnista Boðaþing

Hrafnista Boðaþingi óskar eftir metnaðarfullum og skipulögðum sjúkraliða með viðbótardiplóma. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf sem krefst sjálfstæðra vinnubragða. Markmið starfsins er að veita íbúum hjúkrun í samræmi við sýn og stefnu Hrafnistu.

Framundan eru spennandi tímar í Boðaþingi en í næsta mánuði opnar ný og glæsileg deild og fer þá heimilið úr 44 íbúa heimili á einni deild í tvær deildir með samtals 108 íbúa.

Sjúkraliðar með viðbótardiplóma standa vaktir með hjúkrunarfræðingum þar sem hæfni þeirra og færni er nýtt til fulls miðað við reglugerð.

Starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vaktstjórn
  • Sinnir verkefnum m.v. núverandi reglugerð sjúkraliða með viðbótardiplóma 
  • Hefur umsjón með ákveðnum verkefnum
  • Leiðbeinir og styður við almennt starfsfólk sem sinnir umönnun íbúa, sjúkraliðum og félagsliðum
  • Aðstoða við endurhæfingu íbúa
  • Teymisvinna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sjúkraliða og viðbótardiplóma
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
  • Sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Þekking á RAI mælitækinu er kostur
  • Reynsla af starfi með öldruðum er kostur

Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Allar nánari upplýsingar veitir Kristrún Benediktsdóttir, forstöðumaður heimilisins (kristrun.benediktsdottir@hrafnista.is).

Umsóknarfrestur: 29.06.2025
Staðsetning: Hrafnista Boðaþing

Hjúkrunarfræðingar – Hrafnista Boðaþingi

Vilt þú vinna með okkur að því markmiði að vera leiðandi í umönnun og þjónustu við aldraða? Ert þú hjúkrunarfræðingur í leit að nýju starfstækifæri og vilt vinna á fjölskylduvænum vinnustað þar sem st...
Umsóknarfrestur: 06.07.2025
Staðsetning: Hrafnista Boðaþing

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri – Sléttuvegur

Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir að ráða til sín aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar í 80-100% starf.  Hefur þú áhuga á að prófa þig áfram í stjórnunarstöðu en vilt á sama tíma fá að sinna hjúkrun? Þ...
Umsóknarfrestur: 29.06.2025
Staðsetning: Hrafnista Sléttuvegur

Umönnun framtíðarstarf- Boðaþing

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starfstækifæri? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Hrafnista Boðaþi...
Umsóknarfrestur: 24.07.2025
Staðsetning: Hrafnista Boðaþing

Hjúkrunardeildarstjóri – Hrafnista Nesvellir

Hrafnista Nesvöllum óskar eftir að ráða hjúkrunardeildarstjóra á nýja 40 íbúa hjúkrunardeild sem undir lok árs. Deildarstjóri er leiðtogi í hjúkrun og þjónustu við íbúa á hjúkrunardeild. Framundan eru...
Umsóknarfrestur: 06.07.2025
Staðsetning: Hrafnista Nesvellir
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.