Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Hrafnista óskar eftir sjúkraþjálfara í öflugt endurhæfingarteymi á Ísafold, Boðaþingi og Skógarbæ. Endurhæfingarteymið samanstendur af sjúkra- og iðjuþjálfum ásamt aðstoðarfólki á hverju heimili.
Um er að ræða fjölbreytt starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild ásamt mótun og þróun á starfinu
Starfshlutfall og vinnutími er eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Sjúkraþjálfun er mikilvægur þáttur í að stuðla að auknum lífsgæðum einstaklinga sem búa við færniskerðingar af einhverju tagi. Markmið sjúkraþjálfunar á Hrafnistuheimilunum er því að auka lífsgæði þjónustuþega með aðferðum sjúkraþjálfunar og í nánu samstarfi við annað starfsfólk heimilanna.
Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Nánari upplýsingar veitir Ester Gunnsteinsdóttir deildarstjóri sjúkra- og iðjuþjálfunar (ester.gunnsteinsdottir@hrafnista.is)