Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu og spennandi framtíðarstarfi?
Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni?
Þá erum við mögulega að leita að þér!
Hrafnista Boðaþingi leitar að öflugu starfsfólki í fjölbreytt umönnunarstörf. Um er að ræða 70- 100% starf í vaktavinnu. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið dagvaktir í bland við aðrar vaktir.
Á heimilinu búa í dag 44 íbúar en nú standa yfir framkvæmdir og kemur Hrafnista til með að opna nýja deild í Boðaþingi í sumar. Eftir stækkun koma til með að vera starfræktar tvær deildir, ein með 44 íbúum og sú nýja með 64 íbúum.
Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf um miðjan maí/byrjun júní til að aðstoða við undirbúning opnunarinnar sem og til að fá viðeigandi nýliðafræðslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsfólk í umönnun sinnir fjölbreyttum verkefnum og er enginn vinnudagur eins. Það starfar náið með íbúum og aðstoðar þá meðal annars við fataskipti, böðun, salernisferðir, matmálstíma, lyfjainntöku og félagslegan stuðning.
Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.