Mannauðsstefna

Starfsfólk Hrafnistu er lykillinn að farsælum rekstri Hrafnistu. Sem leiðandi aðili í þjónustu og umönnun aldraðra er stjórnendum og starfsfólki annt um velferð allra þeirra sem starfað er fyrir og með. Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu þar sem íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Metnaður, þekking, reynsla, frumkvæði og ánægja starfsfólks Hrafnistu tryggir gæði þeirrar þjónustu sem veitt er. Markmið mannauðsstefnunnar er að móta starfsumhverfi og aðstæður sem stuðla að vellíðan starfsfólks og hvetja það til aukins árangurs í starfi ásamt því að leggja áherslu á jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu. Í sameiningu skapar starfsfólk jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi. Með því að stuðla að góðum starfsanda og vellíðan starfsfólks mótar Hrafnista eftirsóknarverðan vinnustað

Ráðningar og móttaka

Hrafnista leggur áherslu á að fá til liðs við sig öflugt, traust og metnaðarfullt starfsfólk með fjölbreyttan bakgrunn. Við ráðningu nýs starfsfólks er horft til færni, menntunar, reynslu og hæfni í mannlegum samskiptum óháð kyni, aldri, kynhneigð, kynþætti eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum. Mannauðssvið heldur utan um ráðningar og tryggir að faglegu verklagi sé fylgt. Hrafnista leggur mikinn metnað í að taka vel á móti nýju starfsfólki. Áhersla er lögð á að hverjum starfsmanni sé ljóst hvert sé hans hlutverk og ábyrgðarsvið samkvæmt starfslýsingu. Nýtt starfsfólk fær „þjálfara“ sem er til staðar, kennir og upplýsir. Með því er tryggt að starfsfólk komist hratt og örugglega inn í starfið, viti til hvers er ætlast af því og læri á þau verkfæri og verklag sem þarf til að ná árangri.

Starfsumhverfi og heilsa

Leitast er við að bjóða starfsfólki Hrafnistu upp á öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi sem uppfyllir grundvallarkröfur til vinnuverndar og vellíðunar. Áhersla er lögð á hvetjandi starfsumhverfi, að góður starfsandi, góð samvinna, opin samskipti og gagnkvæmt traust sé á meðal starfsfólks. Jafnframt er lögð áhersla á að starfsfólk sýni hvert öðru fyllstu tillitssemi og virðingu í öllum samskiptum.

Einelti, áreitni og ofbeldi er ekki liðið á Hrafnistu. Ef grunur leikur á slíku er unnið samkvæmt viðbragðsáætlun Hrafnistu gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi. Ítarlegri upplýsingar um stefnuna og úrræði eru aðgengilegar starfsfólki í Vitanum, upplýsinga- og fræðsluvef Hrafnistu.

Hrafnista stuðlar að heilsusamlegu líferni starfsfólks, bæði andlegu og líkamlegu t.d. með ávöxtum á öllum deildum fyrir starfsfólk, heilsuræktarstyrkjum og fræðslutengdum viðburðum. Einnig leggur Hrafnista sitt af mörkum við að halda uppi góðu félagslífi með því að taka þátt í ýmsum viðburðum á borð við Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna til að styrkja samstöðu starfsfólks.

Fræðsla og starfsþróun

Hrafnista leggur áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til starfsþróunar og sé gefinn kostur á að sækja námskeið, fræðslu og símenntun innan Hrafnistu sem utan. Lögð er rík áhersla á að taka vel á móti nýju starfsfólki með öflugri nýliðamóttöku. Hluti af henni er rafræn fræðsla í Hrafnistuskólanum sem er aðgengileg starfsfólki í Vitanum. Boðið er upp á vinnuumhverfi sem stuðlar að því að hæfileikar hvers starfsmanns fái notið sín og tækifæri eru til að vaxa og þroskast í starfi. Starfsfólk fær tækifæri og er hvatt til að tileinka sér nýjar hugmyndir, tækni og aðferðir sem tengjast starfsvettvangi þess. Stuðlað er að markvissri símenntun og öflugu fræðslustarfi með það að markmiði að efla faglega hæfni og þekkingu starfsfólks. Leiðtogahæfni stjórnenda er styrkt með reglulegri stjórnendaþjálfun. Hrafnista tekur þátt í greiðslu námskeiðskostnaðar starfsfólks en jafnframt er starfsfólki bent á starfsmenntunarsjóði síns stéttarfélags.

Fjölbreytileiki og inngilding

Hjá Hrafnistu starfar öflugt teymi fólks með fjölbreyttan bakgrunn, menntun og starfsreynslu. Hrafnista telur að aukinn fjölbreytileiki auðgi vinnustaðinn og skili sér í bættri þjónustu. Hrafnista leitast við að skapa vinnuumhverfi sem styður við fjölbreyttan starfsmannahóp og lögð er rík áhersla á stöðugar umbætur með hagsmuni starfsfólks að leiðarljósi. Unnið er markvisst að því að bæta aðlögun starfsfólks af erlendum uppruna og býður Hrafnista m.a. upp á íslenskukennslu á vinnutíma. Hrafnista er einnig í góðu samstarfi við Virk starfsendurhæfingarsjóð og Vinnumálastofnun og hefur hlotið viðurkenningu sem VIRKT fyrirtæki. Sú viðurkenning er veitt til fyrirtækja sem hafa sinnt samstarfinu við VIRK sérlega vel og sýnt samfélagslega ábyrgð.

Jafnrétti

Jafnréttisstefna Hrafnistu er unnin í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Samkvæmt lögunum á slík áætlun að fjalla um launajafnrétti, laus störf, starfsþjálfun, endurmenntun og símenntun, samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs og viðbrögð við kynbundnu ofbeldi, kynbundnu áreiti og kynferðislegri áreitni. Hrafnista leggur mikla áherslu á að öll kyn njóti jafnréttis innan fyrirtækisins og að starfsfólk hafi jöfn tækifæri óháð kyni. Auk þess skal gæta jafnréttis alls starfsfólks án mismununar á grundvelli kynferðis, aldurs, kynhneigðar, trúarbragða, skoðana, þjóðernis, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti sem lítilsvirðir eða misbýður einstaklingi sem fyrir henni verður. Hrafnista stuðlar að jafnrétti og stjórnendur fylgja meðfylgjandi jafnréttisstefnu og aðgerðaráætlun jafnréttismála. Þannig er unnið stöðugt að jafnrétti innan fyrirtækisins.

  1. Allt starfsfólk Hrafnistu fær greidd sömu laun og sömu kjör fyrir sömu störf.
  2. Öll eiga jafna möguleika til starfa hjá Hrafnistu, óháð kyni.
  3. Allt starfsfólk, sama hvaða störfum það gegnir hjá Hrafnistu, á jafna möguleika til endurmenntunar, símenntunar og þeirrar starfsþjálfunar sem það þarfnast til að auka færni sína í starfi.
  4. Stjórnendur skulu skipuleggja störf og verkefni þannig að starfsfólk geti sem best samræmt vinnu og einkalíf.
  5. Fordómar, einelti, kynbundin eða kynferðisleg áreitni og ofbeldi eru ekki liðin innan Hrafnistu.

Jafnlaunastefna

Það er stefna Hrafnistu að vinna stöðugt að jafnrétti innan fyrirtækisins og að laun og önnur kjör séu samkeppnishæf við sambærileg störf á markaði. Forsendur launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við kjara- og stofnanasamninga og stefnu Hrafnistu í launamálum.

Hrafnista hefur hlotið jafnlaunavottun og skuldbindur sig til þess að viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur ÍST 85:2012 staðalsins. Hrafnista hefur innleitt verklag og skilgreint launaviðmið til að tryggja að starfsfólk fái greitt fyrir störf sín út frá verðmæti starfa óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum.

Hrafnista skuldbindur sig til að fara eftir viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem gilda á hverjum tíma.

Fjölskylduvænn vinnustaður

Starfsfólki er gert kleift að samræma vinnu og einkalíf með gagnkvæmum sveigjanleika eftir því sem við verður komið og þörf er á. Sveigjanleiki getur falist í sveigjanlegum vinnutíma, hlutastarfi til skemmri eða lengri tíma, starfsstöð nærri heimili, óskavaktakerfi eða annarri vinnuhagræðingu. Foreldrar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn til fæðingarorlofs, óháð kyni.

Hrafnista kemur til móts við óskir starfsfólks um sveigjanlega töku fæðingar- og foreldraorlofs þar sem því er við komið og auðveldar starfsfólki að koma aftur til starfa við lok fæðingarorlofs.

Stjórnun og forysta

Skipulag Hrafnistu einkennist af stuttum og skýrum boðleiðum. Starfað er samkvæmt samþykktu skipuriti og starfslýsingum, þannig að hver og einn þekkir hlutverk og ábyrgðarsvið sitt. Lögð er áhersla á skýra verkferla og virka upplýsingagjöf til alls starfsfólks og að starfsfólk hafi gott aðgengi að stjórnendum. Stjórnendur þurfa að búa yfir leiðtogahæfni og sýna fagmennsku í starfi sínu.

Stjórnendum ber að tileinka sér vandaða og nútímalega stjórnunarhætti. Mikilvægt er að skipuleggja og stjórna eftir aðstæðum, þróa með sér jákvætt viðhorf, virkja starfsfólk, hvetja, veita stuðning og dreifa ábyrgð og verkefnum til að ná árangri. Stjórnendafræðsla er í boði fyrir alla stjórnendur og er stjórnendahandbók aðgengileg í Vitanum.

Gæða og umbótastarf

Lögð er áhersla á að efla gæði og öryggi þeirrar þjónustu sem veitt er á Hrafnistu. Heilbrigðissvið Hrafnistu stuðlar að því að stöðugt sé unnið eftir ströngustu gæðakröfum sem gerðar eru til starfseminnar, með útgáfu verklagsreglna, innri úttektum og úrbótavinnu eftir ytri úttektir. Sviðið styður jafnframt við faglegt starf á Hrafnistu í þeim tilgangi að efla fagþekkingu starfsfólks og frumkvæði í gæðastarfi.

Á Hrafnistu er unnið eftir gæðaviðmiðum frá Embætti landlæknis sem koma fram í gæðavísum í RAI-mati. Þeir gefa vísbendingar um gæði þeirrar þjónustu sem veitt er og unnið er markvisst með þá í þeim tilgangi að veita bestu mögulega þjónustu. Mikilvægar upplýsingar um gæði þjónustunnar fást einnig með reglulegum þjónustukönnunum sem Hrafnista lætur ytri aðila framkvæma meðal íbúa og aðstandenda.

Hrafnista starfrækir fjölbreytta og þverfaglega umbóta- og gæðahópa en tilgangur þeirra er að efla gæði og öryggi á Hrafnistu, ásamt því að stuðla að stöðugum umbótum í starfsemi Hrafnistu. Mannauðssvið Hrafnistu gerir reglulega vinnustaðagreiningar, markmið þeirra er að kortleggja núverandi stöðu svo bregðast megi við og nýta niðurstöður til framfara og aukins árangurs. Með vinnustaðagreiningu eru könnuð viðhorf starfsfólks til lykilþátta í starfseminni eins og miðlunar upplýsinga, samskipta á vinnustað, tækifæra til starfsþróunar, starfsánægju, stjórnunarhátta og ímyndar vinnustaðarins út á við.

Megin markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa, bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.