Börnin á leikskólanum Gimli heimsóttu íbúa á Hrafnistu Nesvöllum í gær. Íbúum og starfsfólki finnst alltaf jafn gaman að fá þau í heimsókn og eru afskaplega þakklát fyrir þá dýrmætu vináttu sem hefur myndast þeirra á milli.
Það var skálað í kvenorku-skotum í morgunsárið á Ísafoldinni í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna í dag, fimmtudaginn 8. mars. Nema hvað ?Til hamingju með daginn.
Valgerður Hildibrandsdóttir gladdi okkur á Hrafnistu í Garðabæ- Ísafold með því að gefa okkur þrjár brúður til að nota í dúkkumeðferð (doll therapy). Dúkkumeðferð er meðferðarform sem getur gert einstaklingum með langt genginn heilabilunarsjúkdóm kleift að upplifa nærveru og hefur einnig þann tilgang að örva viðkomandi til að gefa af sér kærleika og væntumþykju sem flestum er eðlislægt. Dúkkurnar hafa allar nafn og heita þær: Harpa (til vinstri á mynd), Ylfa (í miðjunni) og Kalli (til hægri).
Við á Hrafnistu þökkum Valgerði hjartanlega fyrir gjafirnar og eiga þær svo sannarlega eftir að gleðja, bæði íbúa og gesti.
Una Ragnarsdóttir, starfsmaður í sjúkraþjálfun, hefur starfað á Hrafnistu í 25 ár og Hanna Björg S. Kjartansdóttir, íþróttakennari, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Báðar starfa þær á Hrafnistu í Reykjavík. Um leið og við óskum þeim til hamingju með áfangann er þeim þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem þær hafa sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Rósa Mjöll Ragnarsdóttir aðstoðardeildarstjóri í sjúkraþjálfun Hrafnistu Reykjavík, Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður, Ragnheiður Kristjánsdóttir deildarstjóri, Una, Hanna Björg og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistuheimilanna.
Þann 1. mars fyrir fjórum árum tók Hrafnista við rekstri Hlévangs í Reykjanesbæ. Af því tilefni var blásið til afmælisveislu í hádeginu í dag þar sem íbúum var boðið upp á lambahrygg og meðlæti ásamt desert. Bragi Fannar harmonikkuleikari var á staðnum og spilaði ljúfa tóna á nikkuna fyrir heimilisfólk.
Ingunn Hrönn Sigurðardóttir, félagsliði á Ölduhrauni Hrafnistu í Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri, Ingunn og Hrönn Önundardóttir deildarstjóri á Ölduhrauni.
Áhugavert málþing um iðjuþjálfun í öldrun, á vegum Hrafnistu, verður haldið fimmtudaginn 5. apríl nk. kl. 13:00 - 16:00 á Hrafnistu í Hafnarfirði. Nánari dagskrá verður auglýst síðar en áhugasamir eru hvattir til að taka daginn frá.
Skráning er hafin á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.