Fréttasafn

Myndir frá þorrablóti Hrafnistu Ísafold

Lesa meira...

 

Þorrablót Hrafnistu Ísafoldar og dagdvalar Garðabæjar fór fram á bóndadaginn 25. janúar sl. Þrátt fyrir að hafa ekki fylgt þeim forna sið að karlmenn færu fyrstir á fætur allra manna á heimilinu á bóndadaginn, færu úr að ofan, væru bæði berlæraðir og berfættir, færu í aðra skálmina og létu hina lafa, drægu hana á eftir sér á öðrum fæti, gengu svo til dyra, luku upp bæjarhurðinni, hoppuðu á öðrum fæti í kringum bæinn dragandi eftir sér brókina á hinum og buðu þorra velkomin í garð eða til húsa, varð blótið hin besta skemmtun. Borðin svignuðu af kræsingum, salurinn var fallega skreyttur og starfsmenn gengu um beina í fallegum þjóðbúningasvuntum. Kartín Halldóra Sigurðardóttir söng- og leikkona flutti helstu lög Ellýjar Vilhjálmsdóttur við mikinn fögnuð viðstaddra. Minni karla og minni kvenna var flutt og allir karlmenn fengu blóm. Um 120 manns mættu í blótið þannig að það var þétt setinn bekkurinn. Þúsund þakkir til allra sem að þessum fallega degi stóðu.

 

Lesa meira...

Ásgerður Tryggvadóttir 15 ára starfsafmæli á Hrafnistu

F.v. Pétur, Eygló, Ásgerður og Sigrún.
Lesa meira...

 

Ásgerður Tryggvadóttir, hjúkrunarfrærðingur á Lækjartorgi Hrafnistu Laugarási, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Eygló Tómasdóttir deildarstjóri á Lækjartorgi, Ásgerður og Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Laugarási. 

 

 

Lesa meira...

Rebekkustúkan Eldey hjá Oddfellow hefur veitt Hlévangi styrki

Lesa meira...

 

Rebekkustúkan Eldey hjá Oddfellow hefur styrkt Hlévang síðastliðin tvö ár með 6 lazyboy stólum og verulegum fjárhæðum sem nýttar hafa verið í að lagfæra aðstöðu íbúa í setustofum á efri og neðri hæð heimilisins. Á dögunum kom Rebekkustúkan í heimsókn og skoðaði bæði Hlévang og Nesvelli. Þær ætla að halda áfram að styðja við bakið á Hlévangi og erum við þeim svo innilega þakklát.

 

Lesa meira...

Jolanta Slapikiene 20 ára starfsafmæli á Hrafnistu

Lesa meira...

 

Jolanta Slapikiene, félagsliði á Bylgjuhrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 20 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Eyrún Pétursdóttir deildarstjóri á Bylgjuhrauni, Jolanta og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.

 

Lesa meira...

Rannsóknarsjóður Hrafnistu styrkir þrjú verkefni í þágu málefna aldraðra

Lesa meira...

Úthlutað var nýlega einni milljón króna úr Rannsóknarsjóði Hrafnistu þegar þrjú verkefni hlutu styrki úr sjóðnum. Markmið sjóðsins, sem er í eigu Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins, eiganda Hrafnistuheimilanna, er að stuðla að nýjungum og þróun í málefnum aldraða.Sjóðurinn er opinn öllum, einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum, sem að stunda rannsóknir, formlegt nám eða annað sem stuðlað getur að jákvæðri þróun í málaflokknum.

 

Næringarástand og leiðir til bóta

Berglind Soffía Blöndal næringarfræðingur og doktorsnemi í næringarfræði hlaut styrk að upphæð 500.000 krónur. Rannsóknarverkefni hennar ber heitið Næringarmeðferð aldraðra einstaklinga eftir útskrift af Landspítala Háskóla Sjúkrahúsi. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort útskrift aldraðra einstaklinga samkvæmt Nutrition Care Process meðferðaráætlun ásamt heimsendum mat, sérstaklega samsettum með þarfir aldraðra í huga, hafi áhrif á næringarástand, vöðvastyrk, hreyfifærni, lífsgæði og endurinnlögn á sjúkrahús eða dauða eftir útskrift af öldrunardeild, samanborið við viðmiðunarhóp sem er útskrifaður á hefðbundinn hátt, og viðmiðunarhóp sem væri byggður á sögulegum gögnum frá því áður en útskriftar verkferillinn sem nú er farið eftir var tekin í notkun 2016. Rannsóknin mun gefa upplýsingar um vannæringu aldraðra í heimahúsum og hvaða aðferðum er best að beita til að sporna gegn versandi næringarástandi þeirra. Niðurstöður munu breyta verkferlum hvað varðar útskrift aldraðra einstaklinga og opinberum ráðleggingum um þjónustu við þennan viðkvæma hóp ásamt því að finna leiðir til þess að auka lífsgæði aldraðra.

 

Bætt lífsgæði með Nemaste

Elfa Þöll Grétarsdóttir hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í hjúkrun aldraðra hlaut styrk að upphæð 300.000 krónur. Verkefni hennar ber heitið Þýðing og forprófun á lífsgæðamælikvarðanum: The quality of life in late-stage dementia (QUALID). Markmið verkefnisins er að leggja grunn að markvissum leiðum til að meta árangur af breyttu verklagi eins og Namaste nálgun felur í sér. Namaste umönnun hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi sem ný nálgun í umönnun einstaklinga með heilabilun. Markmið þessarar nálgunar er að bæta lífsgæði einstaklinga með langt genga heilabilun með persónumiðaðri vellíðunarmeðferð. Lífsgæðamælikvarðinn mun nýtast öllum þeim sem starfa við umönnun og þjónustu við einstaklinga með heilabilun.

 

Lestrarþjálfun barna með öldruðum

Hjúkrunarheimilin Hulduhlíð og Uppsalir í Fjarðarbyggð hlutu styrk að upphæð 200.000 krónur. Heiti vekefnisins er Ungur nemur gamall temur. Markmið verkefnisins er að fá grunnskólabörn í heimsókn á hjúkrunarheimilin og taka þar þátt í lestrarátaki. Börnin æfa sig í lestri með því að lesa fyrir íbúa sem veita þeim leiðsögn á meðan á lestrinum stendur. Margvíslegur ávinningur verður af verkefninu; börnin eflast í lestri, íbúar fá heimsóknir grunnskólabarna sem dregur úr einveru auk þess sem þeir taka þátt í uppbyggingarverkefni með börnum. Með verkefninu er verið að tengja saman kynslóðir, skapa notalegan vettvang til eflingar á yngstu og elstu kynslóðum samfélagsins og fá ungviðið í reglulegar heimsóknir.

 

Reykjavík 21. janúar 2019.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins, í síma 892 1771, netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

 

Á meðfylgjandi mynd eru verðlaunahafarnir þrír f.v.; Ragnar Sigurðsson f.h. Fjarðabyggðar, Berglind Soffía og Elfa Þöll, ásamt fulltrúum Sjómannadagsráðs og Hrafnistu í stjórn úthlutunarnefndar rannsóknasjóðsins.

 

Lesa meira...

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar í heimsókn á Hrafnistu Hraunvangi

Lesa meira...

 

 Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar heimsótti Hrafnistu Hraunvangi í Hafnarfirði sl. föstudag. Tilgangur heimsóknarinnar var að skoða Hrafnistuheimilið og kynnast starfseminni.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í heimsókninni þar sem Eyrún Pétursdóttir deildarstjóri tók á móti Rósu í heimsókn á Bylgjuhraunið og sýndi henni m.a. amerísku kisurnar sem Lionsklúbburinn Ásbjörn færði heimilinu að gjöf á dögunum. Bryndís Guðmundsdóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar kynnti starfsemina sem þar fer fram og Harpa Björgvinsdóttir deildarsjóri iðjuþjálfunar kynnti starfsemi deildarinnar og þau fjölbreyttu viðfangsefni sem deildin býður upp á. Á leið sinni um heimilið gaf Rósa sér tíma til að spjalla við heimilisfólk og fór m.a. á ball með íbúum Hrafnistu þar sem henni var að sjálfsögðu boðið upp í dans.

 

Lesa meira...

Jensína orðin elst allra á Íslandi

Lesa meira...

 

Jensína  Andrésdóttir, íbúi á Hrafnistu Laugarási, er nú orðin elst allra sem hafa átt heima hér á landi, 109 ára og 70 daga. Eldra metið átti Sólveig Pálsdóttir á Höfn í Hornafirði en hún var 109 ára og 69 daga þegar hún dó, haustið 2006. Fyrr á því sama ári hafði Guðfinna Einarsdóttir úr Dalasýslu orðið 109 ára og 58 daga. Fjórði íbúi landsins sem hefur náð 109 ára aldri var Guðríður Guðbrandsdóttir úr Dalasýslu en hún lifði í 33 daga fram fyrir afmælið.

Jensína er fædd 10. nóvember 1909 á Þórisstöðum við Þorskafjörð í Austur-Barðastrandarsýslu, tólfta af fimmtán börnum Andrésar Sigurðssonar bónda og Guðrúnar Sigríðar Jónsdóttur. Hún var vinnukona á Vestfjörðum en flutti til Reykjavíkur fyrir miðja síðustu öld og vann meðal annars við ræstingar. Jensína hefur verið á Hrafnistu í rúma tvo áratugi.

Guðrún Björnsdóttir lifði að vísu í 109 ár og 310 daga en hún var fædd í Vopnafirði haustið 1888 og var þriggja ára þegar hún flutti til Kanada með foreldrum sínum og systkinum. Segja má að Jensína eigi Íslandsmetið en geti slegið Íslendingamet Guðrúnar í september.

Alls hafa 26 Íslendingar náð 106 ára aldri og er Georg Breiðfjörð Ólafsson í Stykkishólmi eini karlinn í þeim hópi en hann varð 107 ára og 333 daga.

Að sjálfsögðu á Jensína Hrafnistumetið í langlífi en næstar henni koma Guðný Ásbjörnsdóttir og Kristín P. Sveinsdóttir en báðar urðu þær 106 ára.

Í meðfylgjandi töflu er áhugaverð samantekt um elstu Íslendinga sögunnar sem Jónas Ragnarsson hefur tekið saman. Jónas er helsti sérfræðingur landsins í langlífi og aldursmetum Íslands og heldur úti Facebook-síðunni Langlífi.

 

Sjá tölflu hér: Langelstu Íslendingarnir

 

Lesa meira...

Síða 77 af 175

Til baka takki