Þorrinn var haldinn hátíðlegur á Hrafnistu Nesvöllum föstudaginn 26. janúar sl. Mættu þar prúðbúnir íbúar, aðstandendur og starfsfólk til að gæða sér á dýrindis þorramat sem var skolað niður með íslensku brennivíni eða bara okkar góða malt og appelsíni. Dói, félagi úr harmonikkufélagi Suðurnesja, sá um að spila íslensk þjóðlög á harmonikkuna.