Kristín Hrund Whitehead hefur verið ráðin mannauðsfulltrúi hjá Hrafnistuheimilunum.
Kristín Hrund lauk M.S. prófi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands 2011, M.A. prófi í uppeldis- og kennslufræðum, með áherslu á fullorðinsfræðslu, endurmenntun og tölfræðilegri úrvinnslu gagna, frá Albert – Ludwigs háskólanum í Freiburg í Þýskalandi.
Kristín starfaði sem sérfræðingur á mannauðssviði Olís 2013-2017. Í störfum sínum þar vann Kristín að fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála og kom einnig að launavinnslu og fræðslumálum. Áður vann Kristín meðal annars sem háskólakennari um 3ja ára skeið í Þýskalandi.