Þorrablót Hrafnistu í Reykjavík var haldið föstudaginn 19. janúar sl. Íbúar og gestir fjölmenntu í Skálafell á aðalskemmtunina sem hófst kl. 17:00. Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistuheimilanna setti þorrablótið og veislustjóri kvöldsins var Regína Ósk Óskarsdóttir og hélt hún upp góðu fjöri. Ræðumaður kvöldsins var Sigurður Garðarsson framkvæmdastjóri Naustavarar. Regína og Sigurður fóru einnig með minni karla og kvenna.
Sigursveinn Þór Árnason, gítarleikari og maður Regínu, spilaði og söng skemmtileg lög með konu sinni.
Eftir skemmtunina var þorramatur á boðstólnum og gæddu gestir sér meðal annars á hákarli, hrútspungum og hval ásamt ýmsu öðru góðgæti.
Bragi Fannar harmonikkuleikari spilaði á nikkuna undir borðhaldi og stjórnaði hópsöng í Skálafelli.
Einnig var þorragleði á hjúkrunardeildum í húsinu, skemmtuninni í Skálafelli var sjónvarpað í gegnum á Hrafnisturásina upp á deildar. Harmonikkuleikarar fóru um húsið og spiluðu undir borðhaldi inn á deildum.