Rebekkustúkan Eldey færði Hrafnistu Hlévangi í Reykjanesbæ 200 þúsund krónur að gjöf til að bæta aðstöðu í setustofu íbúa. Keyptur verður hægindastóll ásamt öðrum skrautmunum.
Hér til hliðar er mynd frá afhendingu gjafarinnar. Við þökkum þeim innilega fyrir glæsilega gjöf.