Signe R. Skarsbö, félagsliði á Vitatorgi Hrafnistu Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri, Signe, Erla Gyða Hermannsdóttir (sem átti nýlega stórafmæli og fékk afhenta afmælisgjöf frá Hrafnistu af því tilefni), Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjavík, Anna María Friðriksdóttir deildarstjóri á Vitatorgi og Josephine Ramos aðstoðardeildarstjóri.