Sjómannadagurinn á Hrafnistu í Hafnarfirði hófst með því að Lúðrasveit Hafnarfjarðar lék nokkur lög fyrir heimilisfólkið sem naut veðurblíðunnar. Sjómannamessan var svo strax á eftir og var vel mætt í hana.
Myndlistasýning Daða Guðbjörnssonar var í Menningarsal á 1. hæðinni, iðjuþjálfar kynntu sitt starf í aðstöðu sinni á vinnustofunni í kjallaranum ásamt því að sýning var á handverki heimilismanna.
Böðvar Magnússon og Guðmundur Ólafsson voru með tónleika og DAS bandið spilaði nokkur lög í Menningarsalnum. Í boði voru kaffiveitingar fyrir gesti og gangandi sem kíktu við.