Hátíðarguðsþjónusta var haldin á sjómannadaginn á Hrafnistu í Reykjavík. Ræðumaður dagsins var Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna. Hann sagði frá því grettistaki að leggja í hafnargerð árið 1913 og þeim stórhug sem fylgdi framkvæmdinni. Þetta var stærsta mannvirki sem lagt hafði verið út í á Íslandi fram til þessa.
Sveinn H. Guðmarsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar las ritningarlestra, glæsilegur í einkennisbúningi Landhelgisgælunnar. Vigdís Sigurðardóttir söng eftirminnilega, Ave Mariu eftir Bach/Gonoud og lagið Í dag skein sól. Félagar úr Kammerkór Áskirkju syngu og organistinn var Magnús Ragnarsson. Sr. Svanhildur Blöndal þjónaði fyrir altari.