Hjördís Ósk Hjartardóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á Sjávar- og Ægishrauni, Hrafnistu Hafnarfirði, frá og með 1. september n.k. en þá lætur Guðríður Sigurðardóttir af störfum vegna aldurs. Hjördís Ósk hefur undanfarin ár gegnt stöðu aðstoðardeildarstjóra á sömu deild.
Um leið og við óskum Hjördísi til hamingju með nýja stöðu innan Hrafnistu þökkum við Guðríði fyrir vel unnin störf í þágu Hrafnistu og óskum henni velfarnaðar um ókomna tíð.