Föstudaginn 18. desember hélt starfsfólk endurhæfingardeildar Hrafnistu í Hafnarfirði hið árlega sérrýsund. Bergþór Pálsson söngvari kom og flutti hugljúf jólalög við afar góðar undirtektir og sá jafnframt um undirleik.
Hóparnir sem stundað hafa leikfimi í sundlauginni undir stjórn Helenu íþróttakennara voru ofan í lauginni og dönsuðu, marseruðu og sungu.
Sundlaugin var sett í jólabúning og skreytt hátt og lágt. Í kringum 150 manns tóku þátt í þessari skemmtun. Allir sem vildu fengu sérrýstaup, Nóakonfekt og smákökur.
Sérrýsundið í ár tókst með eindæmum vel og það voru ánægðir gestir sem yfirgáfu skemmtunina að henni lokinni.