Haustfagnaður heimilisfólks á Hrafnistu í Hafnarfirði var haldinn með pompi og prakt í gær, fimmtudaginn 24. september. Mikið var um dýrðir og skemmti fólk sér konunglega undir veislustjórn þeirra Davíðs Ólafssonar og Stefáns Stefánssonar. Að loknu borðhaldi tók við ball með Guðmundi Hauki Jónssyni.
Myndir frá haustfagnaðinum má sjá í meðfylgjandi myndaalbúmi.