Í dag, föstudaginn 31. janúar var haldið fyrsta Hrafnistu þorrablótið í Skógarbæ. Heimilisfólk, gestir og starfsmenn voru sátt við að fá þorramat og var honum að sjálfsögðu skolað niður með íslensku brennivíni.
Bragi Fannar vinur okkar kom og spilaði á nikkuna og allir tóku vel undir, þá sérstaklega þegar sungið var Í Hlíðarendakoti.