Hildur Dögg Ásgeirsdóttir hefur verið ráðinn aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Bylgjuhrauni Hrafnistu Hraunvangi.
Hildur lauk B.Sc. prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2012. Hún hefur undanfarið starfað sem teymisstjóri í heimahjúkrun hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og hefur öðlast þar góða reynslu í stjórnun og þverfaglegu teymisstarfi.
Við bjóðum Hildi velkomna í hóp stjórnenda á Hrafnistu en hún kemur til starfa á vordögum.