Bergdís A. Kristjánsdóttir, sjúkraliði á Sjávar- og Ægishrauni Hrafnistu Hraunvangi í Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Hjördís Ósk Hjartardóttir hjúkrunardeildarstjóri á Sjávar- og Ægishrauni, Bergdís, Sveindís Skúladóttir aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.