Guðrún Birna Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðardeildarstjóri á Sólteig/Mánateig Hrafnistu Laugarási frá 1. nóvember. Guðrún Birna útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá HÍ í júní 2019, hún er einnig með BS í líffræði og nam líf- og læknavísindi á meistarastigi við sama skóla. Hún hefur starfað á Sólteig/Mánateig með hléum frá því í júní árið 2008, fyrst í aðhlynningu, svo sem hjúkrunarnemi og nú síðast sem hjúkrunarfræðingur.
Við óskum Guðrúnu Birnu til innilega hamingju með stöðuna.