Í síðustu viku var svokölluð kjördæmavika á Alþingi. Þá leggja Alþingismenn hefðbundin störf til hliðar og heimsækja fólk og fyrirtæki í kjördæmum sínum. Á föstudaginn komu tveir þingmenn Samfylkingarinnar í heimsókn til okkar á Hrafnistu í Laugarási en það voru þau Helga Vala Helgadóttir, formaður Velferðarnefndar Alþingis og Ágúst Ólafur Ágústsson og fengu þau kynningu á starfsemi Hrafnistuheimilanna. Eybjörg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu var einnig með á fundinum og áttu fundarmenn gott spjall um heilbrigðis- og velferðarmálin í samfélaginu. Við þökkum þeim Helgu Völu og Ágústi Ólafi kærlega fyrir komuna.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Hálfdan Henrysson stjórnarformaður Sjómannadagsráðs, Eybjörg Hauksdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Laugarási, María Fjóla Harðardóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðissviðs Hrafnistuheimilanna, Ágúst Ólafur, Helga Vala og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.