Sylwia Sliczner, starfsmaður í aðhlynningu á Miklatorgi Hrafnistu Laugarási, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Margrét Malena Magnúsdóttir deildarstjóri á Miklatorgi, Sylwia, Guðlaug Helga Helgadóttir aðstoðardeildarstjóri og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.