Tenórsöngvarinn Gissur Páll og píanóleikarinn Árni Heiðar héldu stórkostlega tónleika í Menningarsalnum á Hrafnistu Hraunvangi miðvikudaginn 21. ágúst sl. Fjölmenni var á tónleikunum og íbúar og gestir nutu þess svo sannarlega að hlýða á sönginn. Við þökkum þeim félögum kærlega fyrir komuna.