Jóhanna Bjarnadóttir, starfsmaður í aðhlynningu á Sjávar- og Ægishrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sveindís Skúladóttir aðstoðardeildarstjóri á Sjávar- og Ægishrauni, Jóhanna, Hjördís Ósk Hjartardóttir deildarstjóri og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.